Leiðbeiningar þessar eiga við um Android spjaldtölvur og síma og biðjum við iPad skjánotendur um að hafa samband við okkur á hjalp@memaxi.is til að fá frekari leiðbeiningar.
Orðalisti
Memaxi Display er app sem hlaðið er niður á spjaldtölvu. Þetta er einföld og skýr skjámynd sem sýnir dagskrá, minnisatriði, ljósmyndir, veðurupplýsingar og fleira. Einfaldir snertihnappar leyfa notandanum að skoða dagskrá morgundagsins, hringja og taka á móti myndsamtölum.
Skjánotandi er sá sem þarf á langtímaaðstoð eða umönnun að halda. Hann sér dagskrána sína og minnisatriði á skjánum.
Tenglar/notendur eru aðstandendur og fagfólk sem tengist skjánotandanum og hjálpa honum með notkun Memaxi.
Memaxi Connect er app sem hlaðið er niður í snjallsíma sem aðstandendur nota til að stýra og setja efni inn á skjáinn. Memaxi Connect er líka hægt að opna á vefsíðunni go.memaxi.com
Hvernig fer ég að?
1) Fara í Google Play Store eða App Store og leita að Memaxi. Þá koma upp tvö smáforrit, Memaxi Display og Memaxi Connect. Hlaða skal niður Memaxi Display á spjaldtölvu skjánotandans og opna það svo.
2) Aðstandandi opnar Memaxi Connect í símanum, velur skjánotandann og velur "Kóði fyrir Skjár"
3) Næst skal velja "Enter Display Code" eða "Sláðu inn skjákóða" í Memaxi Display og slá inn skjákóðann frá Memaxi Connect til að virkja skjáprófílinn á spjaldtölvunni.
Vert að athuga
Alltaf er hægt að smella í efra vinstra horn og svo neðra hægra horni Memaxi skjásins til að komast í skipulagssíðu á bak við skjáinn.
Í uppsetningunni er óskað eftir aðgangi að ýmsum hlutum spjaldtölvunnar, hljóði, myndavél og öðru. Óhætt er að samþykkja allar þessar spurningar. Í uppsetningunni kemur einnig stillingarmynd frá Android stýrikerfinu þar sem beðið er um leyfi fyrir Memaxi og skal samþykkja það með því að færa hnappinn til hægri
Athugasemdir
0 comments
Ekki er hægt að skrifa athugasemdir við grein.